| Þorri hjá Step Pyramid |
Á sunndaginn ákváðum við að gera eitthvað menningarlegt í Alexandriu og skelltum okkur á bókasafnið en það er alveg hrikalega stórt og mikið af söfnum út frá því, sáum til dæmis fötin sem Sadat forseti (forsetinn á undan Moubarak) var í þegar hann var skotinn til bana. Já margt merkilegt og fræðandi en þar sem hvorugt okkar er mikið fyrir sögu eða arkíetktúr stöldruðum við ekki svo lengi við en skelltum okkur hins vegar í stutt bíó sem var í svona kúluhúsi og ferðuðumst við þar niður alla Níl í rafting.
| Fornt letur ofaní einum af pýramítunum |
Við komum hingað til Cairo á mánudaginn. Það má segja að við séum orðin nokkuð sjóvuð í borginni erum farin að rata og þekkja göturnar með bestu matsölustöðunum og svo framvegis.
En leiðin frá Alexandriu til Cairo var nokkuð skemmtileg, í þetta skiptið tókum við lest og fórum við í gegnum mikið af sveitum sem var mjög áhugavert að fylgjast með. Það má allavegana segja það að íslenskir bændur (nú til dags) geta verið mjög sáttir við sín tæki og tól á miðað við egypsku bændurna. Hérna eru allir akrarnir slegnir með ljá, rakað saman með hrífum og tekið saman með höndunum í heysátur sem eru svo bundnar saman með stráum og látnar liggja til þurrkunar til þerris, síðan er þetta sett á litla kerrur sem dregnar eru af litlum asna greyjum eða þá að konurnar beri þetta á höfðinu að hlöðunni. Heyið fer ekkert til spillis þarna því það er mikið notað sem þök á húsin þeirra. Á þessari þriggja tíma keyrslu sáum við aðeins tvær, æfafornar, dráttavélar en annars engin önnur tæki. Það er kannski ekki furða að meðalaldur egypskra karlmanna er aðeins um 65 ár.
| Göng ofaní pýramíta |
Á heimleiðinni keyrðum við svo fram hjá ísraelska sendiráðinu í Cairo en þar var allt morandi í hermönnum en þeir ætla greinilega að reyna að koma í veg fyrir aðra árás, en það varð ráðist á það og einhverjir drepnir þarna í síðustu mótmælunum, fyrsta föstudaginn okkar hérna.
Enduðum svo góðan dag á æðislegum egypskum mat (falafel, hummus, shawarma og cream caramel) á uppáhaldsstaðnum okkar og horfðum á egypskan fótboltaleik.
| Töffari á markaðnum smellti einum blautum á Grétu |
Það eru nokkur skrítin lög og hefðir hér í landi sem við höfum heyrt af til dæmis heyrðum við einn mann segja að ef múslimskur pabbi hér í landi myndi koma að dóttur sinni að reykja sígarettu myndi hann þurfa að drepa hana heiðursins vegna, þá þarf ekki einu sinni að nefna allar hryllingssögurnar sem maður heyrir í fréttunum um heiðursmorð á konum í þessum löndum vegna makavals og annars. Hér stendur í lögum að konur megi ekki ferðast til annarra landa nema með samþykki eiginmanns síns og að nýlega hafa verið felld niður lög sem heimiluðu nauðgurum að ganga lausir ef þeir myndu giftast fórnalambi sínu. Það er greilega ekkert auðvelt að vera kona í svona strangtrúuðu múslimaríki enda sér maður mikið af konum á götunum með glóðuraugu og jafnvel afskræmdar vegna sýruárásar.
En á morgun kveðjum við svo Egyptaland og tökumst á við ný ævintýri sunnar í Afríkunni, í Kenýa. En í lokinn langar okkur að taka saman nokkur atriði um hvernig við upplifðum Miðausturlönd (þá aðallega Egyptaland)
Það sem kom okkur mest á óvart:
-Hvað það er rosalega lítið af ferðamönnum um allt landið (Ísrael undanskilið)
-Hversu margir karlmenn ganga í kufli með túrbína dagsdaglega
-Hvað það er lítið um skordýr
| Guttar að leik |
-Hversu margir tala ensku
-Hversu mikið er um „venjuleg“ klósett
-Umferðin!!
-Hversu mikið er um skotvopn og hermenn útum allt
Það sem stóð uppúr:
-Allir Pýramítarnir í Egyptalandi
-Blue Hole í Dahab
-Petra í Jórdaníu
-Dauða hafið
-Jerúsalem í Ísrael
-Að horfa á lífið útum gluggan í öllum rútu og lestarferðunum
Jákvæðar hliðar:
-Lang flestir eru mjög vingjarnlegir
-Góður matur
-Alltaf gott veður, sérstaklega á kvöldin
-Flest er frekar ódýrt
-Egyptar eru ennþá nokkuð lausir við vestræn áhrif og halda fast í sína menningu
-Góðar samgöngur
-Maður upplifir sig alltaf öruggan, jafnvel þó maður sé úti seint um kvöld og í afskektum strætum
| Svona ganga Egyptar um gersemin sín |
Neikvæðar hliðar:
-Reynt að svindla á manni hvert sem maður fer
-Fólk á götunni getur verið mjög þreytandi þegar það vill selja manni eitthvað
-Magakveisur
-Þegar það fer í 40°C+!!
-Þegar maður hrekkur við á nóttunni við hávær bænaköll
-Moskítóflugur (Þorri er samt mun meira gæðablóð en Gréta og tekur allt á sig)
-Rusl út um allt, egyptar eru miklir sóðar og henda rusli út um allt, allsstaðar
Við höfum líka tekið saman hversu lengi við höfum setið í lestum og rútum síðan við komum:
Rútur: 35,5 klukkutímar
Lestar: 33 klukkutímar
Það gera sem sagt rétt tæpa þrjá sólahringa :)
1,5 l af vatni = 50 kr.
Tveggjamannaherbergi á gistiheimili = 800-2.000 kr.
Morgunverður á gistiheimili = 100 kr.
Leigubíll í 40 mín. = 300 kr.
Seglskúta með stýrimanni í 2 tíma á Níl = 1.200 kr.
Einkabílstjóri frá 8:00-16:00 = 4.000 kr.
Aðgangseyrir á Pýramítana = 1.200 kr.
ATH það er hægt að fá allt miklu dýrara en þetta er það sem við höfum verið að fylgja.
Hér kemur svo kort af leiðinni sem við höfum farið síðustu þrjár vikurnar (Hægt að ýta á myndina til að stækka hana):
Svo í lokinn viljum við benda á myndirnar inná Facebookinu hjá Grétu (opið öllum) og video sem við gerðum um fyrripart ferðarinnar (fleiri væntanleg mjög fljótlega) en HÉR er linkur inná það.
| Bæ, bæ Miðausturlönd |
Frábært blogg....en ég var að pæla hvort þið nenntuð að senda mér einn fílsunga eða ljónsunga:)
SvaraEyðakv Inga og Heimir
Hehe, þið eigið eftir að fá sjokk þegar þið komið aftur heim þegar þið þurfið að fara að borga svona tífalt meira fyrir allt ;)
SvaraEyðaEn alltaf gaman að fylgjast með ykkur, og skemmtið ykkur geðveikt vel í Kenýa :)
Kv. Arnheiður
Gaman að flygjast með ykkur á ferðalaginu, ekki alveg eins gaman að öfunda ykkur! :P
SvaraEyðaKær kveðja:
Sindri Jó
Alltaf jafn gaman að lesa!!! Hlakka til að lesa pistlana frá Kenýa og þið haldið áfram að passa vel uppá hvort annað. Ástarkveðjur mamma
SvaraEyðaTakk fyrir að fá að ferðast með ykkur, maður býður spenntur eftir næstu ævintýrum :)
SvaraEyðakveðja Sigga
Hæhæ..
SvaraEyðaAlltaf jafn gaman að lesa bloggin frá ykkur.. Mjög skemmtilega skrifað..
Virkilega gaman af þessari samantekt hjá ykkur vona að þið haldið áfram að gera það á næstu stöðum :)
kv. Bjarni
Rosalega gaman alltaf að lesa ferðabloggið ykkar. Góða ferð til Kenýa ;)
SvaraEyðaEkkert smá gaman að lesa bloggin ykkar, haldið áfram að skemmta ykkur þarna úti :)
SvaraEyðakv. Sigurdís
Frábær lesning. Hafið það sem best ;)
SvaraEyðakv JMK
Djöfulli langar mig að sjá pýramída núna! Ég er nú einnig svekt að ekkert boð hafi boðist í Grétu...óskiljanlegt! haha =) Góða ferð til kenýa
SvaraEyðaÓtrúlega skemmtilegt blogg. Frábær samantektin, vona að þið gerið samskonar samantekt á hinum stöðunum, góða ferð til Kenya :)
SvaraEyðaEins og alltaf, gott blogg sem gaman er að lesa. Sammála Bjarna Frey um að það er gaman að sjá samantektina hjá ykkur í lokin og hlakka til að sjá hana frá hinum löndunum ;)
SvaraEyðaHeld samt að ef þið hefðuð farið á úlfaldamarkaðinn á föstudegi hefði verið boðið í Grétu Maríu eins og hótelstjórinn ykkar sagði.
Vona að þið hafið það gott í Kenýa og hlakka mikið til að lesa pistla frá því landi næst :)
Knús og kram
Helga
Ég hefði aldrei þorað að fara inní þennan pýramída :P
SvaraEyða@Gréta: Væri gaman að heyra í þér í gegnum skype við tækifæri ;) prófaði að fara inná það en sá ekkert request frá þér, en mitt er sigurveig18, addaði greta.maria. .. ert það þú ? ;)
Kv. Sigurveig
Mjög gaman að sjá það sem þið tókuð saman í lokin, það sem kom mest á óvart og allt það.
SvaraEyðaGóða ferð í Kenýa. Ætlið þið ekki að hitta Fanney og fjölskyldu ?
Kv
Sigurbjörg
Ég var dálítið sein að ná þessu bloggi - en það er jafn skemmtilegt fyrir það.
SvaraEyðaÞað eru greinilega miklu fleiri plúsar en mínusar við Egyptaland - eiginlega gott þið eruð farin þaðan þið eruð orðin svo egypsk!!! Grín.
Hlakka til að heyra frá ykkur næst - passið hvort annað og farið varlega innan um villidýrin í Kenya.
kveðja
amma
Ekkert nýtt blogg??
SvaraEyðakv Jóhanna
slaka a!! :) kemur um leid og vid finnum somasamlegt net, hvar svosem thad nu verdur! :) (thad var ekki mikid um nettengingu i frumskoginum :)
SvaraEyðaSTORT knus
Greta og Thorri